|
|
27.04.2007 09:20:21 / Agnes
Jæja þá eru
Djammdruslur formlega hættar..
Takk fyrir öll kommentin
og heimsóknir..
Kv. Agnes
Það er samt komin ný síða með þar sem Kata og Erna halda áfram
www.dufus-.central.is
(hjá sumum kemur kanski ekki - fyrir aftan, muna eftir því)
Endilega kíkja þangað
»
26.04.2007 18:28:14 / Djammdruslur
Í dag eiga tvær merkar gellur afmæli, Jóna
Særún og Hanna Veiga! Innilega til hamingju með afmælin ;*
Jóna okkar Særún er 16 ára í dag. Þetta er
yndisleg stelpa sem við sjáum ekki eftir að hafa kynnst! Hún
er algjör söngfugl með ótrúlega fallega rödd, hennar bjarta bros
bræðir hvern karlpeninginn á fætur öðrum, hún er ótrúlega falleg og
frábær stelpa í alla staði! Jóna er ein sterkasta manneskja sem við
þekkjum og hefur hún gengið í gegnum margt sem enginn ætti að þurfa
að ganga í gegnum! Þú ert æði og þú veist það ;*

Við elskum þig sæta , eigðu góðan dag! ;*
Hanna Veiga er 42 ára í dag. Hún er
frábær manneskja og alltaf góð við
okkur! Hanna Veiga er hálfgerð mamma hennar Agnesar
og fyrrverandi tengdamamma Kötu - þá er bara Erna eftir. Þú ert
gullmoli af bestu gerð!

Eigðu góðan dag og láttu karlana þín stjana við
þig, og þá er Erró meðtalinn
Afmæliskveðjur
.djammdruslur.
»
24.04.2007 13:25:25 / Agnes
»
19.04.2007 18:23:16 / Djammdruslur
»
15.04.2007 16:06:43 / Kata
Jæja gott fólk hvað segiði
þá?
Ég ligg hérna uppí rúmmi hjá henni Lovísu minni og hef það
notarlegt. Er búin að vera fyrir sunnan núna í 6 daga og fer heim á
mrg
Langar samt ekkert að fara aftur, það er búið að vera svo
notarlegt hjá okkur, búnar að vera duglegar að þræða bíóhúsin og
barina, eina kvoldið samt sem bið drukkum á var föstudagskvöldið,
endaði nú sam þannig að ég fór heim um 3 held ég orðin edrú nennti
ekki að djamma, Lovísa varð samt eftir og ég sá hana ekkert fyrr en
um hádegið næsta dag skamm Mikki hún er mín
Fórum aðeins út síðan í gær kveldi eðrú báðar, kíktum á paddy´s
Halli Valli og Smári að spila var frekar nice bara að sitja og
spjalla og hlusta á þá
Þið vitið ekki hvað ég sakna þess að búa hérna, svo planið er eftir
sumarið að flytja aftur suður, erum ekki vissar hvað við ætlum að
gera en að fara að leigja saman í rvk kemur sterkt til greina=
ég og Lovísa mín:*
Ég sakna líka Guðjóns svolítið mikið eyddi líka svona 3-4 tímum á
mið eða fim í að kúra hjá honum, það var notarlegt
Bjössi litli bróðir hennar Vigdísar kom líka hlaupandi til mín og
kallaði KÖTA HÆJ, það var OF krútttlegt
En það er samt alveg vooooðalega EKKERT að frétta, er búin að fara
4 sinnum í bíó.
Thurtles: Hún var bara nokkuð góð skal ég segja ykkur bjóst ekki
við því en viti menn, allt getur komið manni á óvart, fórum ég
Lovísa Guðjón og Kristófer vantaði samt textann fyrir hlé og myndin
á Ensku ekki skemmtilegt fyrir strákana!
Mr.Bean: alveg eins og þættirnir, hélt að hún yrði betri en allt í
lagi samt komu fyndnir hlutir inná milli, varð fyrir svolitlum
vonbrigðum. Fór með Lovísu og MaggaPé í lúxus!!!
Hitcher: Hún var GÓÐ!!! Shitt hvað mér brá oft !!! og djöfull var
brooke flott Fór með Lovísu í kef
Perfect Stranger: Hún er frekar góð, bjóst samt við bregðumynd
en þetta er spennumynd sem endar alveg ótrúlega!
Fór með MaggaPé Lovísu og við fórum í smárabíó!!
Hittum samt öryggisvörðinn sem tók mig og Sunnu seinast þegar
ég var í rvk og hann horfði á mig gg svalur og sagði"HEY Þú ég
þekki þig!!" L-úði
En verð að skjótast heyrumst:*:*
Katz
»
13.04.2007 10:35:46 / Erna
Ég þarf aðeins
að segja ykkur soldið ..
Kata: Mig dreymdi
þig í nótt... við vorum að slást! Og það voru sko hnefar og læti!
En þú varst miklu sterkari en ég... og kýldir mig og kýldir í
andlitið=/ Ég gat ekki neitt og var bara eins og e-r aumingi... man
samt ekki afhverju við slógumst en vonandi gerist það ekki þegar u
kemur norður
Agnes: Þú verður
að leggja af stað strax í hádeginu!! Ég get ekki beðið að hitta þig
og gera allt sem við ætlum að gera!! ;D;D Og Nína líka.... við
gerum e-n skandal, ég finn það á mér!! 
Allir hinir:
Drullið ykkur á Ak, það verður STUÐ hér um helgina! ;D
Ég er farin..
sjáumst vonandi á eftir
-Erna
Jæja nú ætla ég að troooða mér inní þetta svakalega blogg!
En ekki til að vera leiðinlega þó Erna hafi viljað slást við mig
heldur til að óska honum Mikka okkar til hamingju með afmælið:*

Jæja Elsku Mikki
sem átt aldrei eftir að lesa þetta (en kanski les Maggi fyrir þig)
Til hamingju með afmælið kútur:* 21 orðinn hund gamall
Ég kynntist Mikki
fyrst þegar hann kom á stf, djö hvað hann var stundum þreytandi!
Hélt að hann fengi athygli stelpnanna með því að stríða þeim
Held alveg öruglega að það höfum verið við Dóra Oddný sem buðum
þeim fyrst út á röltið skildum ekki neitt hvað var verið að segja
og get ekki ýmindað mér hvernig þeim greyjunum
leið
En eftir að Davið
fór aftur til Póllands breyttist Mikki til hins
betra og hefur hann verið einn af okkur síðan:*
Mikki hefur átt nokkrar gullnar setningar eins og "Vígnir
Vígnir, hvadd er setta kýnbomba"hehe
En Elsku Mikkalingur til hamingju með afmælið:*
Elskum þig sæti
-Djammdruslur-
»
11.04.2007 10:55:37 / Erna
Þá er ég búin að gera
nýjan banner... og ég vil endilega að þið kommentið og segjið
hvað ykkur finnst um hann! Getnaðarlegu myndirnar af okkur
eru teknar á KFC Selfossi þegar við Kata kíktum í heimsókn
til Andra og Agnesar í september, en hinar við hin ýmsu
tækifæri.
Núna er ég hins vegar komin á Eyrina góðu,
skólinn byrjaður og krakkarnir að koma norður um helgina!! 
Ohhh það verður svooo gaman!! ;D;D
En ég nenni ekki meiru... hef eeeekkert að segja!
,)
Hlakka til að hitta ykkur sætu ;*

Erna-
»
08.04.2007 15:11:45 / Erna
Ég er svo léleg að blogga á þessa síðu að það er ekki sniðugt..
ætti kannski að segja mig úr henni ? neee.... 
Sit bara heima í náttbuxum og hettupeysu, tilbúin á rúntinn en
nei nei.. þá er Kata bara farin norður, Agnes á esk og Nína að fara
í matarboð .. og mig vantar sárlega smá stelpurúnt ..
Vaknaði áðan alveg tilbúin að borða páskaeggið mitt.. kom upp og
opnaði það.. borðaði svo eitt nammi og hef ekki lyst á meiru! Svo
það stendur alveg heilt páskaegg og fullt af nammi uppi á
eldhúsborði... er ég léleg eða hvað ?
Það er svo þægilegt að vera heima, er ekki búin að gera neitt af
viti sko.. var reyndar nokkuð dugleg að fara út að hlaupa fyrst en
svo kom þessi snjór og ég nenni ekki að hreyfa mig... langar samt
lúmskt út á sleða, rifja upp gamla tíma þegar við vorum alltaf í
kirkjubrekkunni og ég missti röddina eftir eitt stökkið, haha =/
hver er leikur ? 
Við Agnes tókum stuttan en góðan rúnt í gærkveldi.. tókum
nokkrar snjópósumyndir og Agnes reyndi ítrekað að festast.., ætla
að setja nokkrar útvaldar inn á þetta blogg... 
Agnes driver..
Bíllinn eftir einn skaflinn!
Þorði ekki upp á ..
En það var í lagi því Jórunn flaug
á hausinn..
Þá varð ég líka smeyk!
Hittum Nínu og Vigga sem voru að
ýta bílnum!
Nína tók pós fyrir okkur 
Agnes hoppaði í skafl 
Og ég varð skyndilega feit
=/
Norður á þri.. en það er í lagi
því krakkarnir koma norður á söngvakeppnina um helgina ;D Hlakka
til að hitta stelpurnar mínar! það verður sko laaangur rúntur því
Salka þarf að segja okkur allt slúðrið frá Berlín og Aþenu!

Komnar nýjar myndir inn frá böllunum á esk :
Frá Buff : http://www.blog.central.is/djammdruslur?page=viewPage&id=1477569
Frá Outloud : http://www.blog.central.is/djammdruslur?page=viewPage&id=1479342
-Erna ..
Akureyri, ég sakna þín!
»
31.03.2007 23:51:15 / Kata
sælt veri fólkið=)
ákvað ég nú þar sem ég sit ein heima fyrir
framan tölvuna á þessu laugardagskveldi að blogga örlítið, enda
ekkert annað hægt að gera.Búin að gera allt held ég sem hugsast
getur í tölvunni í dag annað en að blogga Tek það samt skírt
framm fyrir þá perra sem lesa þetta að ég er ekki búin að vera að
skoða klám eða eitthvað þessháttar
Páskarnir eru á næsta leiti og allir
fljúgandi ánægðir, komnir í frí og geta haft það notarlegt, mér
hins vegar finst þetta ekki eins spennandi kanski er ástæðan sú að
ég er ekki í vinnu eða skóla svo að ég fæ ekkert frí, ekkert til að
vera spennt yfir svosem....
Í dag er mánuður og 13 dagar þangað til ég
á afmæli, 21 árs ég trúi því varla sjálf og til að blekkja mig enn
frekar er ég að hugsa um að halda bara 20 afmæli aftur,geri það svo
í nokkur ár þangað til ég treysti mér til þess að viðurkenna að ég
eldist rétt eins og aðrir. Furðulegt hvað tíminn líður hratt, mér
finst svo stutt síðan ég sat í handavinnutímum hjá Mörtu að ákveða
hvernig pils ég ætti að sauma mér næst, urðu að vísu öll eins bara
mismunandi á litin spes.
Og Dóra fór hring um stofuna klippti smá bút af hárinu á öllum og
ætlaði að búa til Vúdú-dúkkur Já sem betur fer var tíminn búinn
fljótlega eftir það svo ekkert varð úr því föndrinu, nema Dóra lumi
á hárinu einhversstaðar enn þann dag í dag
Mig langar að gera eitthvað! en sorglegt
en satt þá er ekkert að gera....
Mér og Ása hlakkaði soldið til að vera ein
heima yfir helgina þar sem þau gömlu ákvaðu að skella sér í
bústað og hafa það notó, þau fóru um hádegið og klukkan 4 vorum við
orðin pirruð því þetta var bara leiðinlegt, ekkert að gera, altof
rólegt, þetta var bara engann vegin skemtilegt
En allavegana þá er ég að hugsa um að
lífga uppá hlutina hérna taka mér vatn í glas og hella á Ása þar
sem hann sefur óhræddur í sófanum, hann hefur gott af því að blotna
aðeins strákurinn, veit samt ekki hvort hann verði eins viss um það
og ég
En þangað til næst
-Katmandú;*;*-
»
29.03.2007 10:11:08 / Agnes
»
26.03.2007 21:14:23 / Djammdruslur
Við sitjum hér tvær brúnar og sællegar, nýkomnar úr ljósum og
litun

Eftir ljósin horfðum við á O.C. og miðað við leik þeirra og
ákvarðanir í þessum þætti höfum við ákveðið að taka að okkur
hlutverkin þeirra svo endilega sitjið límd við sjónvarpið næsta
mánudag kl 20.00!

Tökurnar byrjuðu í síðustu viku og eins og þið sjáið erum við
strax búnar að kynnast meðleikurunum
Tökurnar gengu eins vel fyrir sig og hægt er og því vorum við
fengnar í ekki minna fræga þætti

Hér erum við með hjartaknúsaranum okkar;*
Síðast en ekki síst fengum við tilboð um að landa stórri
Hollywood mynd... og hvernig er hægt að segja nei við grenjandi
umboðsmann?

Eins og þið sjáið erum við að gera gamla mynd fræga á ný, og þið
getið farið á hana í bíó um páskana.. hún er væntanleg í sambíóin
og fjarðarbíó, hún verður sýnd með fullkominni þrívíddartækni og
bæði með ensku og íslensku tali... svo nóg er úr að velja, þið
getið t.d. farið á hana tvisvar
Steven Spieldberg kallar, við þurfum að fara að leika .. sjáumst
á hvíta tjaldinu;* Okkur hlakkar mjög til að koma aftur til
landsins... 
We don't know what it is,
that makes us feel like this
We don't know who we are
but we must be some kind of superstars...
Cause we got all eyes on us no matter where we are...
(James Morrison breytti laginu um daginn fyrir okkur, honum fannst
það passa miklu betur svona)
Hugs and kisses
Ernie and Katie ;*
P.s. bannað að stela og gera eins
»
23.03.2007 10:44:03 / Erna
Ég er að
fara suður!
Ég er að
fara suður!
Ég er að
fara suður!
Ég er að
fara suður!

--
Hef ekkert
meira að segja í bili, langaði bara að koma með smá færslu hérna
því það er svo langt síðan í bloggaði hér síðast...
Og já, ég
var að borða grillaða skinkuhyrnu og drekka trópí! Best í heimi,
eða ekki alveg, bara smá..

-Erna is
out!
p.s. er að
fara í bæinn ef þið náðuð ekki punchline-inu í
blogginu;D
Langaði að bæta inn í bloggið þitt
Erna því að það vantar bara sirka 250 upp á að það verði eitthver
númerið 19000!!! alveg eins og á minni síðu svo það verður eins
hér.. númer 19000 fær línka og blogg díll;D
Kv. Agnes
P.S sorry að ég skildi troða mér inn á bloggið
þitt Erna mín..(K)
»
14.03.2007 15:41:32 / Kata
Jæja held að það sé vika frá
seinasta bloggi þó ég sé ekki alveg viss!
En ykkur að segja gengur bara mjög
vel hjá mér. Er á deildinni 3 í viku eða á mánudögum ,miðvikudögum
og fimmtudögum.
Mánudagar og
miðvikudagar:
-
morgunmatur
kl.8
-
fundur kl.9
-
skólastígur 9:30 -
12:00
-
Hádegismatur
12:00
-
slökun
kl.13:00
-
svo viðtöl og
þessháttar
Fimmtudagar:
Svona eru dagarnir hjá mér uppá
deild, en svo á þeim dögum sem ég er ekki þar á ég að fara í sund
og það 3 í viku svo ég var obboslega dugleg að ég fór í gær og
keypti mér sundkort, og ljósakort
Í gær var öðruvísi dagur, við
fórum ég Erna og Lára í ljós svo í jólahúsið keyptum okkur
karmellur svo í vín og keyptum okkur ísrétti frábær dagur og svo
notarlegur:* thank´s girls=*
vá hef voðalega lítið að segja og
enginn speki hjá mér í dag, eða jú ég er að lesa bók á deildinni
sem heitir viskuorðin 4 og hún er svo frabær. man samt ekki alveg
allt en a.m.k er 1 viskuorðið um að maður eigi að gæta hvað maður
segir, því máttur orðsins sé svo mikill. og það er virkilega rétt
hvað eitt orð getur breytt miklu og ekki bara ef það eru slæmir
hlutir líka góðir
Og mér fanst líka athyglisvert að
lesa um það hversu glaðir litlir krakkar eru yfirleitt þegar þeir
eru saddir og ekki þreyttir en það er vegna þess að þeir lifa bara
núið eru ekkert að velta sér uppúr frammtíðinni eða fortíðinni en
það er eitthvað sem við gerum of mikið af, svo ef börn fara í
fataleiki og fara kanksi að klæða sig upp sem t.d
lögfræðing,bakara,löggu,allt nánast kemur altaf alvarlegur
svipur á þau, því fullorðnafólkið er altaf alvarlegt og þetta er
eitthvað sem verður að breytast held ég
En nenni ekki meir
bæjóów=*=*=*
Katrín Birna
»
07.03.2007 20:45:43 / Kata
Aloha=)
Ákvað ég nú að koma með eitt
stykki blogg úr Eyjarfirðinum, ekki seinna vænna=)
En eins og margir vita þá er ég á
geðdeildinni á Akureyri en bara á dagvist, semsagt ekki
nætursjúklingur. Þetta er alveg mjög fínt og bún að kynnast fólkinu
og er að fara að byrja í félagsfælnihóp, þar eru fullt af folki
eins og ég=)
Var í dag að tala við eina konu,
hjúkrunarfræðing á deildinni og vorum að reyna að komast að
því afhverju ég er orðin eins og ég er og halda allir og ég
varð sammála því að þetta má rekja langt aftur og í byrjun hafi
þetta ekki verið félagsfælni en með árunum hefur það breyst=/ Þetta
er orðinn einskonar vítahringur í samblanda við þunglyndi sem er
samt aðalega komið af fælninni, svo hafa fleiri atburðir komið inn
sem ekki hafa bætt líðan.
hef aldrei pælt í því áður hvað
uppeldi hefur mikinn þátt í að móta manneskju, og ég er ekki að
segja að þetta sé allt foreldrum mínum að kenna heldur því hvernig
ég upplifði hlutina sem barn, en mér hefur altaf fundist eins og
fólkið sem mér þótti vænst um og fólkið sem ég treysti myndi hverfa
á einn eða annan hátt og auðvitað hefur þetta áhrif á það hvernig
samskipti mín eru við annað fólk, líka hvernig ég kem altaf og
fer=/ En meðvitað eða ekki slít ég eiginlega öll sambönd við
fólk sem ekki býr á þeim stað sem ég er á akkurat á þeim tímanum,
það er eitt af því sem ég er að takast á við núna dýpri samskipti,
hljómar kanski ekki erfitt fyrir ykkur en það er það fyrir
manneskju eins og mig sem kann ekki á það að hleypa einhverjum að
sér almennilega og þið sem hafir upplifað þetta af minni hálfu þá
þykir mér vænt um ykkur, ég kann þetta bara ekki, ég er
veik.
En ykkur að segja þá er þetta
frekar langt ferli sem ég er að fara að ganga í gegnum veit ekki
alveg hversu langt en ég ætla að gefa þessu tíma, ég vil einhvern
tíma getað lifað í eðlilegum samskiptum og eignast heimili sem
verður mitt ekki vera á endalausu ferðalagi. Og ég veit ekki
hvernig ég myndi getað lifað sátt við sjálfan mig ef ég myndi hætta
á miðri leið. Þó að ég eigi eftir að vilja hætta, ég veit það, það
er strax byrjað en að þurfa að rifja upp gamalt og geymt er mjög
erfitt og þá virðist oft auðveldara að hætta en ég vona bara að ég
fái áfram þann stuðning sem ég þarf bæði frá vinum og fjölsk.
en það er það sem rekur mann áfram í svona baráttu=)
Burt með þessa stelpu sem situr
við skjáinn!!!! ÉG VIL KÖTU
Já, það er rétt oft finst mér ég
vera allt önnur manneskja og ég upplifi oft eins og ég fljóti bara
með er ekki neitt. Sárt en satt=/
En ég ætla að hafa þetta nóg í
bili kem með fleyri færslur kanski vikulega eða svo til að leyfa
ykkur að fylgjst með=*
-Kata
»
02.03.2007 16:07:28 / Djammdruslur
Þetta er ekki skemmtilegt blogg heldur
minningarblogg. Í nótt gerðist hræðilegur
atburður, þegar vinkona okkar missti mömmu sína sem var
einnig besta vinkona hennar. Við getum ekki ímyndað okkur
hvað þú ert að ganga í gegnum elskan en við ætlum að reyna að
styðja þig í gegnum það! ;*
Þú hefur allan okkar stuðning og veist af okkur ef þig
vantar eitthvað og við gerum allt sem í okkar valdi stendur svo þér
líði betur.
Við tókum okkur það bessaleyfi að stela myndum af ykkur
saman.

†
Söknuður †
Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum,
er rökkvar, ráðið stjörnumál,
gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niðrað strönd.
Fundið stað,
sameinað
beggja sál.
Horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Því eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Ég gái út um gluggann minn.
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar,
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá napurt er.
Það næðir hér
og nístir mig.
Vilhjálmur Vilhjálmsson

Elsku elsku Jóna okkar, reyndu að vera sterk þó það
virðist erfitt!
Elsku Jóna Særún okkar og fjölskylda, við samhryggjumst
ykkur innilega!
†Samúðarkveðjur †
Erna, Kata og Agnes ;*
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|